Um okkur
Icerental4x4 er íslensk bílaleiga sem sér hæfir sig í fjórhjóladrifnum (4x4) bílum og bílum með þaktjöld.
Icerental4x4 er nýstárleg bílaleiga á Íslandi sem sérhæfir sig í 4x4 bílum. Icerental4x4 er fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 2013 og hófst með aðeins 10 bíla. Síðan þá hefur bílaleigan vaxið mikið, með stóra leiguskrifstofu nálægt Keflavíkurflugvelli, þar sem við bjóðum upp á mikið úrval farartækja í öllum stærðum og árgerðum. Ástríða okkar er fjórhjóladrifnir bílar og byggir flotinn okkar á gæða 4x4 farartækjum - en við útvegum einnig 9 sæta farþegabíla of smærri farartæki til að uppfylla þarfir allra.
Árið 2014 byrjuðum við með Camper jeppa okkar þar sem boðið var uppá að sofa í jeppunum á meðan hálendið er skoðað.
Þessi hugmynd þróaðist síðar í þaktjöld og árið 2017 kynntum við þaktjöldin okkar í ýmsum stærðum. Þetta er fullkomin leið til að koða Ísland yfir sumartímann - 4x4 jepparnir okkar með þaktjaldi gefur þér frelsi til að sjá hálendið og ósnortna náttúru Íslands.
Við hjá Icerental4x4 erum staðráðin í að bjóða upp á hágæða 4x4 farartæki á sanngjörnu verði og við trúum á persónulega þjónustu sem byggir á því að byggja upp tengsl við hvern og einn viðskiptavin okkar.
Fjölskyldan hjá Icerental4x4 hefur stækkað síðan 2013 - í dag starfa rúmlega 30 manns. Við erum ein stór fjölskylda þar sem fjölsbreytileiki er lykillinn að uppbyggingu okkar. Í dag kemur Icerental4x4 fjölskyldan frá 5 mismunandi löndum.