Languages

Currency

Við höfum hjálpað fólki að upplifa Ísland síðan 2013

Við höfum hjálpað fólki að upplifa Ísland síðan 2013

Finndu þinn Bílaleigubíl á Íslandi

5 - star car rental service 24/7

Bílaleiga á Íslandi

  • Íslensk bílaleiga
  • Persónuleg þjónusta
  • Traust í 11 ár
  • Alltaf til staðar
  • Online checkin
Google

4.3

4.109 Google Ummæli

icon-sepparator

Um okkur

Við hjá Icerental 4x4 leggjum okkur fram við að veita hágæða 4x4 bíla sem eru fullkomlega sniðin til að keyra um krefjandi landslag Íslands á auðveldan og öruggan hátt. Umfangsmikill floti okkar tryggir að þú finnur hentugan bíl fyrir ferðalagið þitt, hvort sem þú ferðast um gróft hálendið eða þræðir fallegu firðina sem Íslands hefur upp á að bjóða.

Við leggjum mikinn metnað í að bjóða upp á samkeppnishæf verð og sveigjanlega leigumöguleika, sem tryggir að ferðin þín falli inn í ferðaáætlun þína og fjárhag. Með margra ára þekkingu í farteskinu veitum við trausta þjónustu og erum tilbúin til að veita mikilvægar upplýsingar og leiðbeinigar og leggjum okkur fram við að gera ferðalagið þitt sem þæginlegast og öruggast.

Ánægja viðskiptavina er okkar forgangur. Metnaðarfullt teymi okkar er tilbúið til að aðstoða þig skref fyrir skref, ef þörf er á, til að tryggja það að upplifun þín af Icerental 4x4 standist væntingar þínar. Við erum þægilega staðsett, rétt hjá á Keflavíkurflugvelli. Við tryggjum þægilega byrjun á ferðalaginu þínu sem gerir þér kleift að hefja fríið þitt áhyggjulaust og án tafar.

Veldu Icerental 4x4 fyrir ferðalagið þitt um Ísland. Veldu frelsi fyrir ógleymanlega ævintýrið þitt og við lofum að þú munir njóta alls sem landið hefur upp á að bjóða. .

4x4 tjaldbílar

Með því að leigja 4x4 tjaldbíl hjá Icerental 4x4 öðlast þú frelsi til að upplifa ævintýri í grófu landslagi og óútreiknanlegu veðri. Flotinn okkar býður upp á ýmsum möguleika á 4x4 bílum með þaktjöldum, sem eru bæði hentug og þæginleg. Þessi tjöld eru ótrúlega auðveld í notkun. Það þarf einungis nokkrar mínútur til að setja þau upp og bakka sama, sem gerir þér kleift að nýta tímann þinn frekar í að skoða stórkostlegt landslag Íslands.

Með því að ferðast um á 4x4 tjaldbíl hefurðu sveigjanleika til að fara inn á afskekkt hálendið, aka malarvegi og gista á tjaldsvæðum víðs vegar um landið. Traustu bílarnir okkar tryggja að þú getir tekist á við síbreytileg veðurskilyrði Íslands, allt frá rigningu til snjóþekju.

Ferðalagið þitt um Ísland verður þæginlegra og upplifunin betri með því að leigja 4x4 tjaldbíl. Það gerir þér kleift að uppgötva það falda og óþekkta og njóta alls þess sem íslensk náttúra hefur upp á að bjóða. Hvort sem þú ert að skoða fossa, dást að stórkostlegum jöklum eða sofa undir dansandi norðurljósum, verður hver stund að ógleymanlegu ævintýri.



Algengar spurningar

Er nauðsynlegt að ferðast um Ísland á 4x4 bíl?

Ef þú ætlar að skoða hálendi Íslands (Fjallvegir) verður þú að vera með 4x4 bæil. Að vera á 4x4 bíl yfir vetrartímann getur verið mikilvægt þegar ekið er í snjó og hálku.

Hvar sæki ég bílinn minn hjá Icerental4x4?

Skrifstofa okkar er í um 7 mínútna akstursfjarlægð frá Keflavíkurflugvelli. Við tökum á móti þér í komusal flugvallarins með skilti með lógóinu okkar á og ökum með þig á skrifstofuna okkar, þar sem þú tekur á færð bílinn þinn.

Get ég leigt bíl á Íslandi án kreditkorts?

Hjá Icerental4x4 geturðu leigt bíl án kreditkorts. Ef þú kaupir Premium eða Platinum tryggingarpakkinn okkar þurfum við ekki kreditkort..

Hvernig get ég borgað fyrir leiguna mína?

Þegar þú bókar á netinu geturðu greitt annað hvort alla upphæðina eða 15% af leigukostnaði og afganginn við afhendingu. Þegar þú borgar á netinu geturðu greitt með debet- eða kreditkorti. Þú getur borgað með kreditkorti þegar þú sækir bílinn þinn. Við tökum við öllum helstu kreditkortum.

Hvað er þaktjald?

Þaktjald er tjald sem er sett ofan á bílinn. Það er auðvelt að setja upp og bakka saman. Þaktjöld eru til leigu með 4x4 bílunum okkar.

Hversu stórt er svefnplássið í þaktjaldinu?

Í tjölunum eru dýna (140/200CM), koddar og sængur fyrir tvo. Dýnan er mjög þægileg og pláss fullorðna.

Hvernig eru afbókanir meðhöndlaðar?

Þú getur afbókað bókun þína allt að 48 klukkustundum áður en leigan hefst og fengið fulla endurgreiðslu.

Hvað er innifalið í leiguverði?

Leiguverðið inniheldur ótakmarkaðan kílómetrafjölda, 24% virðisaukaskatt, undanþága frá árekstrum, þjófnaðarvörn og ábyrgð þriðju aðila.

Er lágmarks leigutími?

Lágmarks leigutími er 48 klst.

Má ég keyra á öllum vegum á Íslandi?

Þér heimilt að keyra á öllum vegum á bílum frá Icerental 4x4 nema F-249. Framhjóladrifnir bílar og AWD sendibílum eru ekki leyfðir á neinum fjallvegum ásamt vegum 35 og 550.